Lash & Brow Lift Námskeið

 

   Lash eXtend er er hágæða vörumerki frá Hollandi sem sérhæfir sig í vörum fyrir augnháralengingar ásamt lash lift og brow lift vörum.

Lash eXtend hafa verið í stöðugri vöruþróun síðan 2010 til að uppfylla ströngustu kröfur um gæði til að geta veitt 100% þjónustu ásamt því að veita faglega kennslu fyrir þá sem nota vörurnar þeirra.

 

Lash lift og Brow lift námskeið

Lash lift námskeið og start pakki sem inniheldur allt sem þarf til að framkvæma lash lift og fylgja efni með sem duga fyrir 10-20 meðferðir.

Brow lift námskeið og start pakki sem inniheldur allt sem þarf til að framkvæma brow lift og fylgja efni með sem duga fyrir 10-20 meðferðir.

 

Námskeiðið byrjar klukkan 10:00 og stendur yfir í cirka 4-5 klst. Farið er yfir hvernig á að framkvæma meðferðina, farið verður yfir allar vörurnar og efnin sem við notum og hvað ber að varast, algeng mistök og umhirðu.

Nemendur fá sýnikennslu þar sem farið er ítarlega í það hvernig meðferðin er framkvæmd. Að því loknu fá nemendur að fá til sín módel og æfa sig sjálf – Boðið er upp á léttan hádegismat.

Á námskeiðinu er ekki kennt að lita né plokka.  

Nemendur fá aðgang að lokuðum facebook hóp, aðgang að kennara og aðgang að vefverslun okkar eftir námskeiðið.


*Athugið að skráningargjald sem greiða þarf við skráningu fæst ekki endurgreitt. Námskeiðið er hægt að fá endurgreitt að hluta frá stéttarfélaginu.

Skráning og nánari upplýsingar á info@karmapro.is